Ná skuldaviðmiði fyrr en áætlað var

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Reykjanesbær mun að öllum líkindum ná undir lögboðið 150% skuldaviðmið fyrr en upphafleg aðlögunaráætlun gerði ráð fyrir, að því er fram kom í máli Kjartans Más Kjartanssonar bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem lauk nú undir kvöld.

Í vor kom fram að skuldaviðmið Reykjanesbæjar hafði lækkað úr 208,5% niður í 189,55%. Þá var gert ráð fyrir því í aðlögunaráætlun fyr­ir árin 2017 til 2022 að Reykja­nes­bær næði 150% skuldaviðmiði árið 2022.

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2019 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2020-2022 voru samþykktar 10-0 á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem hófst síðdegis.

Fram kemur í tilkynningu frá bænum að skilvirk fjárhagsstjórn, aðhald í rekstri, hagstæð ytri skilyrði, auknar tekjur og breyttar reglur um útreikning skuldaviðmiðs séu meðal þess sem valdi því að hraðar gangi að nálgast skuldaviðmiðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK