Verða stærstu framleiðendur í heimi

Bjarni Benediktsson og Kristján Már Kjartansson tóku fyrstu skóflustunguna að …
Bjarni Benediktsson og Kristján Már Kjartansson tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verksmiðju Algalífs. Orri Björnsson forstjóri fyrirtækisins stendur með þeim. Ljósmynd/Algalíf

Fyrsta skóflustunga að nýrri verksmiðju Algalífs var tekin á föstudaginn 4. júní. Áætlaður kostnaður við byggingu verksmiðjunnar er um 4 milljarðar króna. Talið er að um eitt hundrað störf myndist á framkvæmdatíma verksmiðjunnar og að varanleg störf verði um 80 eftir stækkunina.

Algalíf er stærsta örþörungafyrirtæki á Íslandi og eitt af þeim stærstu í Evrópu. Eftir stækkunina verður fyrirtækið stærsti framleiðandi heims á astaxanthíni, þetta kemur fram í tilkynningu Algalífs.

Astaxanthíni er notað í fæðubótaefni og snyrtivörur um allan heim. Fyrirtækið áætlar að með byggingu nýju verksmiðjunnar fari ársframleiðslan úr rúmum 1,5 tonni af astaxanthíni í rúm 5 tonn. Mun því framleiðslugeta nýju verksmiðjunnar rúmlega þrefaldast. 

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og er ekkert jarðefnaeldsneyti notað við framleiðsluna. Algalíf áætlar að binding á koltvísýringi fari úr um 80 tonnum á ári í 250 tonn eftir stækkunina og ef þetta stendur verður kolefnisfótspor fyrirtækisins neikvætt.

Fyrirtækið var stofnað árið 2012 og er í eigu norskra fjárfesta. Um 40 manns starfa hjá fyrirtækinu og er ársveltan um 1,5 milljarðar króna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK