Landsvirkjun greiðir 20 milljarða í arð

Aðalfundur staðfestir 20 milljarða arð.
Aðalfundur staðfestir 20 milljarða arð. Ljósmynd/Landsvirkjun

Landsvirkjun hyggst greiða 20 milljarða arð í ríkissjóð fyrir árið 2022. Þetta var samþykkt á aðalfundi fyrr í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu Landsvirkjunar.

Þá var jafnframt skýrsla stjórnar og samstæðureikningur fyrir liðið reikningsár staðfest og Deloitte var kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar. 

Engar breytingar voru gerðar á stjórn eða varastjórn á fundinum. Var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður og Jón Björn Hákonarson endurkjörinn varaformaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK