Tók á því í leðurbuxum

Lenny Kravitz er algjör töffari.
Lenny Kravitz er algjör töffari. AFP

Tónlistargoðsögnin Lenny Kravitz er með skemmtilegan og öðruvísi fatastíl. Hann klæðist reglulega leðurflíkum og hefur gert lengi. Í gærdag birti Kravitz myndskeið á Instagram-síðu sinni sem sýnir hann taka vel á því í ræktinni. 

Tónlistarmaðurinn vakti mikla athygli annarra ræktargesta fyrir klæðaburð sinn og kraft, en hann lyfti þungum lóðum eins og ekkert væri klæddur leðurbuxum, hermannaskóm og með sólgleraugu. 

Kravitz, 59 ára, er þekktur fyrir að hugsa vel um sig. Hann umbreytti lífi sínu með hreinu mataræði og hreyfingu fyrir nokkrum árum síðan og er í hörkuformi, geislar af heilbrigði og þrótti, eins og myndskeiðið sýnir. 

„Þökk sé guði fyrir daginn. Aldrei liðið betur. Gríptu daginn. Það er allt hægt, það þarf bara að framkvæma. Ást,“ skrifaði Kravitz við myndskeiðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg