Háttsettur félagi hryðjuverkasamtakanna Hamas segir að samtökin muni ekki undirrita vopnahléssamkomulag af neinu tagi nema því fylgi algjör friður á milli Hamas og Ísrael um ókomna tíð.
Í umfjöllun AFP segir að viðkomandi fulltrúi Hamas hafi óskað eftir nafnleynd. Einnig er haft eftir honum að Hamas saki Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels um að standa persónulega í vegi fyrir því að samkomulag náist, vegna eigin hagsmuna.
Fulltrúar Hamas sneru aftur til Egyptalands fyrr í dag til að svara boði um fjörutíu daga vopnahlé.
Fréttaveitan hafði fyrr í kvöld eftir háttsettum embættismanni innan úr ísraelska stjórnkerfinu, sem kunnugur er gangi viðræðnanna, að kröfur Hamas um viðvarandi vopnahlé á Gasa hefðu dregið úr vonum um að samkomulag næðist um vopnahlé.
„Hingað til þá hefur Hamas ekki gefið upp kröfur sínar um endalok stríðsins, sem tekur út möguleikann á að samkomulag náist,“ hefur AFP eftir embættismanninum, sem tjáði sig gegn því að hann nyti nafnleyndar.
Hafnaði hann framkomnum fregnum um að Ísrael hefði samþykkt að binda enda á stríðið til að geta leyst gíslana úr haldi Hamas-samtakanna.