Tungumálið „ákveðinn lykill að íslensku samfélagi“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Lilja Alfreðsdóttir á kynningarfundi um áherslur …
Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Lilja Alfreðsdóttir á kynningarfundi um áherslur ráðherranefndar um málefni íslenskrar tungu í Hörpu í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eitt af verkefnum ráðherranefndar um málefni íslenskrar tungu er að skoða hvaða skyldur og þar með hvaða réttindi innflytjendur hafa þegar kemur að íslenskri tungu. Það að efla íslenskukunnáttu innflytjenda eflir samtímis þátttöku þeirra í samfélaginu. 

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra, í samtali við mbl.is, að lokinni kynningu ráðherranefndar um mál­efni ís­lenskr­ar tungu, þar sem þingsályktunartillaga um aðgerðaráætl­un í mál­efn­um ís­lenskr­ar tungu 2023-2026, var kynnt. 

mbl.is/Kristinn Magnússon

Réttindi og skyldur innflytjenda þegar kemur að íslenskri tungu

Guðmundur segir það til skoðunar hvaða réttindi og þar með hvaða skyldur innflytjendur hafa þegar kemur að íslenskri tungu. Sú vinna sé á byrjunarstigi, en þó mikilvæg til að tryggja og jafnframt auka líkurnar á því að innflytjendur nái rót- og fótfestu í íslensku samfélagi. 

„Tungumálið er ákveðinn lykill að íslensku samfélagi. Þess vegna teljum við að það þurfi að skoða mjög vandlega hvernig aðrar þjóðir hafa gert þetta,“ segir Guðmundur sem hefur meðal annars horft til Finnlands, þar sem gerðar hafa verið kannanir á því hvernig finnskir innflytjendur meta gæði náms og kennslu.

Þetta segir hann mikilvægt til að geta unnið öfluga stefnumótun í framhaldsfræðslu og málefnum innflytjenda, en jafnframt hluta af því að þróa starfstengt tungumálanám. 

Til útskýringar á starfstengdu tungumálanámi segir Guðmundur að horfa verði til þess hvaða orðaforða innflytjendur þurfa í sínum störfum til að geta haldið uppi grundvallar samskiptum. 

„Að fólk nái betri tökum á þessum fagorðaforða sem það þarf á að halda. Ég held að þetta skipti mjög miklu máli bæði í þjónustustörfum, en líka ummönnunarstörfum.“ 

Íslenskukunnátta er fjárfesting

Aðspurður segir Guðmundur mikinn áhuga meðal innflytjenda á því að læra íslensku, sérstaklega meðal þeirra sem eru í miklum samskiptum við fólk. 

„En auðvitað er þetta mismunandi. Sumir koma kannski einungis til að vinna í þrjá mánuði, en ílengjast oft, einhver sem ætlaði einungis að vera í ár er búinn að vera í fimm ár. Þá kannski sérðu minni tilgang í því að læra tungumálið, eins flókið og erfitt tungumál sem íslenskan er, fyrir bara nokkra mánuði. En sérð síðan þegar þú ílengist að það hefði sennilega verið góð fjárfesting á sínum tíma [að læra tungumálið].“

Spurður hvort innflytjendum verði gert skylt að læra íslensku áður en það hefur störf hér á landi segir Guðmundur það ekki endilega þurfa að vera þannig. Hann segir verðmætt að fólk sem kemur hingað til lands til að vinna geti hafið störf um leið, enda sé það stór þáttur í því að halda uppi hagvexti. 

„Ég held að við ættum að geta fundið leiðir til að auka þetta hvoru tveggja. Mín skoðun er sú að vinnustaðir eigi að bjóða upp á ókeypis íslenskunám á vinnutíma, vegna þess að þetta er fjárfesting.“



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert