„Já, við leyfum okkur alltaf að vera bjartsýn þegar boðað er til svona fundar og það er bara vonandi að það sé kominn annar tónn í viðræðurnar.“
Þetta segir Unnar Örn Ólafsson, formaður félags flugmálastarfsmanna (FFR), spurður í samtali við mbl.is í morgun hvort búast megi við að samkomulag náist á sáttafundi sem ríkissáttasemjari hefur boðað til í deilu Sameyki, stéttarfélags í almannaþjónustu og félags flugmálastarfsmanna ríkisins, klukkan 12 í Karphúsinu.
Að öllu óbreyttu munu aðgerðir hefjast á Keflavíkurflugvelli síðdegis á fimmtudaginn, þann 9. maí, en Unnar sagði í viðtali við mbl.is fyrr í vikunni að kjaraviðræður starfsmanna strönduðu ekki á launalið viðræðna. Hins vegar væru sértæk atriði á borð við réttindi í fæðingarorlofi og greiðslur fyrir aukavaktir sem væru bitbein viðsemjenda.
Inntur í morgun eftir því hvort hann sé bjartsýnn á að ekki komi til verkfalls á fimmtudaginn segir Unnar of snemmt að segja til um það.
„Nú hef ég ekkert heyrt í SA síðan fyrir viku síðan þannig að við verðum bara að bíða og sjá hvernig fundurinn fer.“