N-listi Nýrrar sýnar hlaut flest atkvæði í kosningum til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.
Ný sýn hlaut 377 atkvæði og fær því fjóra menn kjörna í sveitarstjórnina.
D-listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra hlaut 268 atkvæði og fær því þrjá menn kjörna í sveitarstjórnina. Auður seðlar eða ógildir voru 20.
Alls eru 1.001 á kjörskrá í sveitarfélaginu og var kjörsókn því 66,43%.
Þeir sem voru kjörnir í sveitarstjórn sameinaða sveitarfélagsins eru:
Páll Vilhjálmsson (N)
Friðbjörg Matthíasdóttir (D)
Jenný Lára Magnadóttir (N)
Maggý Hjördís Keransdóttir (D)
Gunnþórunn Bender (N)
Tryggvi B. Bjarnason (N)
Jóhann Örn Hreiðarsson (D)
Samhliða því sem kosið var til sveitarstjórnar, voru kosnir fulltrúar í fjórar heimastjórnir, þ.e. fyrir Patreksfjörð, Tálknafjörð, Arnarfjörð og fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps, tveir aðalmenn og tveir varamenn.
Niðurstöður kosninga til heimastjórna voru:
Heimastjórn Patreksfjarðar:
Aðalmenn voru kjörnir:
Rebekka Hilmarsdóttir, 95 atkvæði
Gunnar Sean Eggertsson, 50 atkvæði
Varamenn voru kjörnir:
Sigurjón Páll Hauksson, 16 atkvæði
Sveinn Jóhann Þórðarson, 9 atkvæði
Á kjörskrá á Patreksfirði voru 564. Atkvæði greiddu 232.
Heimastjórn Tálknafjarðar:
Aðalmenn voru kjörnir:
Þór Magnússon, 48 atkvæði
Jónas Snæbjörnsson, 33 atkvæði
Varamenn voru kjörnir:
Jón Aron Benediktsson, 12 atkvæði
Trausti Jón Þór Gíslason, 4 atkvæði
Á kjörskrá á Tálknafjarðar voru 197. Atkvæði greiddu 134.
Heimastjórn Arnarfjarðar:
Aðalmenn voru kjörnir:
Rúnar Örn Gíslason, 31 atkvæði
Valdimar B. Ottósson, 12 atkvæði
Varamenn voru kjörnir:
Jón Þórðarson, 10 atkvæði
Matthías Karl Guðmundsson, 5 atkvæði
Á kjörskrá í Arnarfirði voru 190. Atkvæði greiddu 107.
Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps:
Aðalmenn voru kjörnir:
Elín Eyjólfsdóttir, 15 atkvæði
Edda Kristín Eiríksdóttir, 10 atkvæði
Varamenn voru kjörnir:
Þórður Sveinsson, 7 atkvæði
Ástþór Skúlason, 5 atkvæði
Á kjörskrá í fyrrum Barðastrandarhrepp og Rauðasandshrepp: voru 72. Atkvæði greiddu 49.