Dramatískt sigurmark Brighton (myndskeið)

Aston Villa missteig sig í baráttunni um Meistaradeildarsæti þegar liðið heimsótti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Villa hefði getað tryggt sér fjórða sætið með sigri í dag að því gefnu að Tottenham tapaði gegn Liverpool í leik sem stendur nú yfir.

Það voru þó heimamenn í Brighton sem stálu sigrinum með marki Joao Pedri skömmu fyrir leikslok. Brighton fer upp fyrir Wolves í 11. sæti deildarinnar.

Markið er í spilaranum efst í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert