Í tilefni komandi forsetakosninga ákvað Smartland að skyggnast á bak við tjöldin og spyrja forsetaframbjóðendur spjörunum úr. Forvitnast um það sem fáir vita en allir ættu hins vegar að vita.
Fimm spurningar fyrir forsetaframbjóðendur: Arnar Þór Jónsson
Fyrsti kossinn?
„Ég geri fastlega ráð fyrir að hann hafi verið frá Ásdísi, móður minni, þegar ég fæddist í þennan heim.“
Hvaða plaköt prýddu veggi herbergis þíns á unglingsárunum?
„Myndir úr ensku fótboltablöðunum, Shoot og Match, en þar var hægt að klippa út heilsíður með stórstjörnum þess tíma.“
Fyrstu tónleikarnir?
„Þegar ég spilaði á blokkflautu í Tónlistarskóla Kópavogs, sex ára gamall.“
Uppáhaldsárstíð?
„Vorið, sem veitir alltaf nýja von og endurnýjaðan þrótt, þegar allt lifnar við og náttúran skartar björtustu litum sínum.“
Botnaðu setninguna: Minn forseti er... :
„Minn forseti er gæslumaður stjórnarskrárinnar og lýðræðisins, en umfram allt varðmaður um hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Sem eini þjóðkjörni fulltrúi þjóðarinnar er hann þjónn almennings og á að veita þjónandi forystu.“