Grunaður um líkamsárás á hóteli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að störfum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðstoðar lögreglu var óskað á hóteli í Hlíðunum tvívegis í nótt. Fyrst upp úr miðnætti vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða.

Tæpum þremur tímum síðar var aftur kallað á lögreglu vegna einstaklings sem neitaði að yfirgefa hótel í hverfinu.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að viðkomandi hafi verið í annarlegu ástandi, grunaður um líkamsárás, og því vistaður í fangaklefa.

Ekki kemur fram hvort um sama einstakling, eða sama hótel, hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert