Strandveiðibátur kom öðrum til aðstoðar

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GRO var kölluð út til að aðstoða vélarvana …
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GRO var kölluð út til að aðstoða vélarvana strandveiðibát við Ingólfsgrunn. Annar strandveiðibátur tók hann í tog. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var tilkynnt um vélarvana strandveiðibát sem rak að skeri við Ingólfsgrunn á Húnaflóa á þriðja tímanum í dag. Þyrla gæslunnar, TF-GRO, var á flugi við Snæfellsnes þegar hún var beðin um að halda í átt að bátnum, að því er segir í fréttatilkynningu.

Einn var um borð í bátnum sem þurfti aðstoð og tókst honum að setja akkeri bátsins út sem kom í veg fyrir að báturinn steytti á skerinu.

Þá segir að annar strandveiðibátur hafi verið beðinn um að veita þeim vélarvana aðstoð og var þyrlan mætt á staðinn fimm mínútur fyrir þrjú og var til taks á meðan báturinn var tekinn í tog af hinum strandveiðibátnum. Vel gekk að koma línu á milli bátanna og eru þeir á leið í átt að Drangsnesi.

Tvö útköll í dag

Bent er á í tilkynningu gæslunnar að þetta sé í annað sinn í dag sem þyrlusveit Landhelgisgæslunnar er kölluð út en skömmu fyrir hádegi var óskað eftir þyrlu vegna manns í sjónum við Álftanes. Maðurinn fannst um það leyti sem þyrlan var að hefja sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 395,14 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,78 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,23 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 154,91 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hafþór SU 144 Grásleppunet
Grásleppa 1.116 kg
Þorskur 43 kg
Samtals 1.159 kg
26.4.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 679 kg
Þorskur 132 kg
Steinbítur 8 kg
Ufsi 5 kg
Þykkvalúra 2 kg
Sandkoli 1 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 828 kg
26.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.279 kg
Þorskur 84 kg
Ufsi 23 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 1.394 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 395,14 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,78 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,23 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 154,91 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hafþór SU 144 Grásleppunet
Grásleppa 1.116 kg
Þorskur 43 kg
Samtals 1.159 kg
26.4.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 679 kg
Þorskur 132 kg
Steinbítur 8 kg
Ufsi 5 kg
Þykkvalúra 2 kg
Sandkoli 1 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 828 kg
26.4.24 Kristín ÞH 15 Grásleppunet
Grásleppa 1.279 kg
Þorskur 84 kg
Ufsi 23 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 1.394 kg

Skoða allar landanir »