Baldvin nýr stjórnarformaður Samherja

Baldvin Þorsteinsson er nýs stjórnarformaður Samherja hf. Hann tekur við …
Baldvin Þorsteinsson er nýs stjórnarformaður Samherja hf. Hann tekur við af Eiríki S. Jóhanssyni sem setið hefur í stjórn félagsins í meira en tvo áratugi. Ljósmynd/Samherji

Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja, var kosinn stjórnarformaður Samherja hf. á aðalfundi félagsins sem fram fór nýverið og tekur hann við stöðunni af Eiríki S. Jóhannssyni sem er framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf., dótturfélags Samherja. Eiríkur hefur verið í stjórn Samherja frá 2001 og stjórnarformaður frá árinu 2005.

Í tilkynningu á vef Samherja í tilefni af aðalfundinum kemur fram að ákveðið hafi verið að greiða út arð til hluthafa sem nemur 3,7% hagnaðar ársins eða jafnvirði 558 milljóna króna. Er þetta í fyrsta sinn í fjögur ár sem greiddur er arður til hluthafa.

Rekstrarhagnaður Samherja hf. nam 9,9 milljörðum króna á árinu 2022 og jókst um rúmlega 800 milljónir króna milli ára. Hagnaður af rekstri samstæðu Samherja hf., þegar tekið hefur verið tillit til afkomu hlutdeildarfélaga og fjármagnsliða, nam 14,3 milljörðum króna eftir skatta en var 17,8 milljarðar króna á árinu 2021.

Frsytihús Samherja á Dalvík.
Frsytihús Samherja á Dalvík. Ljósmynd/Samherji

Afurðir fyrir 54 milljarða

Fram kemur að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., hafi á aðalfundinum sem fram fór 24. ágúst gert grein fyrir uppgjörinu og nefndi í ræðu sinni að í heild hefði afkoman verið góð á árinu 2022. Sumt hafi gengið betur en árið á undan en annað ekki. Uppgjörið litaðist að hluta til af þeim breytingum sem hefðu orðið á efnahagsreikningi Samherja hf. á árinu en þær veigamestu fólust í því að ýmsar eignir voru færðar til félagsins Kaldbaks ehf.

Á síðasta ári seldi Samherji afurðir fyrir 54 milljarða króna og voru sölutekjur vegna afurða nær óbreyttar milli ára. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 9,9 milljörðum króna en var 9 milljarðar króna á árinu 2021.

Í tilkynningunni segir að sölufélag Samherja, Ice Fresh Seafood, hafi selt mun minna magn af uppsjávarafurðum en undanfarin ár. „Munar þar aðallega um stríðið í Úkraínu sem braust út í febrúar 2022 og stoppaði innflutning þangað en Úkraína hefur um árabil verið mikilvægasti markaður félagsins fyrir uppsjávarafurðir.“

Snæfell EA kom til landsins í fyrra og er gert …
Snæfell EA kom til landsins í fyrra og er gert út á grálúðu. Ljósmynd/Samherji

Tekjur af áhrifum hlutdeildarfélaga námu 6,2 milljörðum króna en meðtalin er tekjufærsla að fjárhæð 3 milljarðar króna vegna lækkunar á eignarhluta Samherja í Síldarvinnslunni hf. úr 32,6% í 30,1%. Þá voru tekjufærðir um 1,8 milljarðar vegna sölu á eignarhlut í Samherja Holding ehf.

Þá er verðmæti eigna Samherja hf. við árslok 2022 sagt vera 107,7 milljarðar króna og eigið fé 79,8 milljarða. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok var 74%.

Að meðaltali voru 686 ársverk hjá samstæðunni á árinu 2022 en voru 807 árið á undan. Heildarlaunagreiðslur á síðasta ári námu samtals um 9 milljörðum króna.

Vel búin skip

Á síðasta ári gerði Samherji út fimm ísfisktogara, eitt frystiskip og tvö uppsjávarskip. Vegna samdráttar í útgefnum aflaheimildum í þorski fiskveiðiárið 2022/2023 var ákveðið að leggja einu skipi tímabundið. Frystitogarinn Snæfell EA 310 bættist í flotann um miðjan ágúst 2022, en skipið stundar aðallega veiðar á grálúðu sem er hausuð, sporðskorin og heilfryst um borð.

Þá dróst heildarafli ísfisktogaranna saman um tæplega 3.200 tonn frá fyrra fiskveiðiári, en unnið vara alla daga í fiskvinnsluhúsum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa.

Fram kemur að uppsjávarveiðar hafi gengið með ágætum og að Vilhelm Þorsteinsson EA hafi reynst vel, en á síðasta ári tók skipið þátt í sinni fyrstu loðnuvertíð.

„Skipin eru öll vel búin og sömu sögu er að segja um vinnsluhúsin. Við erum með góða samsetningu aflaheimilda og nauðsynlegt var að fara af stað með Snæfellið til að nýta sem best veiðiheimildirnar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri á aðalfundinum.

Félaginu skipt upp

Á hluhafa fundi í desember var samþykkt að skipta upp félaginu en í gegnum 40 ára rekstrarsögu hefur félagið eignast hluti í fjölda fyrirtækja.

„Fól uppskiptingin í sér að allir eignarhlutir í fyrrgreindum fyrirtækjum, sem að mestu leyti voru í færeyskum og norskum félögum, voru færð til Kaldbaks ehf., sem er sjálfstætt félag og miðaðist skiptingin við 30. júní 2022. Eiríkur S. Jóhannsson er framkvæmdastjóri Kaldbaks ehf.“ segir í tilkynningunni.

Milljarðar lagðir í fiskeldi

Samherji fiskeldi ehf., dótturfélag Samherja, vinnur nú að áformum um 40.000 tonna landeldistöð við Reykjanesvirkjun í þremur áföngum á næstu ellefu árum. Heildarfjárfestingin er áætluð yfir 50 milljarðar króna og hefur stjórn Samherja hefur ákveðið að leggja til verulegt fjármagn til fyrsta áfanga verkefnisins. Vegna þessa verður hlutafé félagsins hækkað um allt að 7,5 milljarða króna. Þegar er búið er að leggja inn hlutafjárframlag upp á 3,5 milljarða króna.

Þá segir að gert sé ráð fyrir að framkvæmdum við stækkunlandeldisstöðvarinnar Silfurstjörnunnar í Öxarfirði ljúki í nóvember en þær hófust í byrjun árs 2022.

Ánægjuleg og lærdómsrík ár

Sem fyrr segir yfirgefur Eiríkur S. Jóhannsson stjórn félagsins eftir meira en tveggja áratuga starf.

„Á þessum rúmlega tuttugu árum sem ég hef verið í stjórn hefur Samherji hf. vaxið og dafnað. Ekki síst vegna þess að fyrirtækið hefur ráðið til sín öflugt starfsfólk í fremstu röð. Þá hafa stjórnendur Samherja hf. borið gæfu til að verja afkomu fyrirtækisins til uppbyggingar þess með fjárfestingum í rekstrinum. Þetta hefur skilað sér í betri og hagkvæmari skipum, innleiðingu tækninýjunga bæði á sjó og í landvinnslu og bættu vinnuumhverfi starfsfólks. Þessi ár hafa verið einstaklega ánægjuleg en í senn lærdómsrík. Ég vil þakka Þorsteini Má, forstjóra, fyrir gott og gefandi samstarf. Þá vil ég þakka starfsfólki, stjórnarmönnum og hluthöfum fyrirtækisins fyrir ánægjulega samvinnu,” er haft eftir Eiríki á vef Samherja.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, þakkaði Eiríki S. Jóhannssýni fyrir …
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, þakkaði Eiríki S. Jóhannssýni fyrir störf sín í stjórn félagsins. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 440,28 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,26 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 191,41 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,87 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,53 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Gylfi Bald SH 131 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 830 kg
13.5.24 Jón Magg ÓF 47 Handfæri
Þorskur 810 kg
Samtals 810 kg
13.5.24 Fengsæll HU 56 Handfæri
Þorskur 753 kg
Samtals 753 kg
13.5.24 Garðar ÞH 122 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ufsi 30 kg
Samtals 907 kg
13.5.24 Oddur Guðjónsson SU 100 Handfæri
Þorskur 561 kg
Samtals 561 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 440,28 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,26 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 191,41 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,87 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,53 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Gylfi Bald SH 131 Handfæri
Þorskur 820 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 830 kg
13.5.24 Jón Magg ÓF 47 Handfæri
Þorskur 810 kg
Samtals 810 kg
13.5.24 Fengsæll HU 56 Handfæri
Þorskur 753 kg
Samtals 753 kg
13.5.24 Garðar ÞH 122 Handfæri
Þorskur 877 kg
Ufsi 30 kg
Samtals 907 kg
13.5.24 Oddur Guðjónsson SU 100 Handfæri
Þorskur 561 kg
Samtals 561 kg

Skoða allar landanir »