Byrjuð að sýna sig á sundfötunum

Kylie Jenner kann að njóta lífsins.
Kylie Jenner kann að njóta lífsins. skjáskot/Instagram

Kylie Jenner eignaðist sitt fyrsta barn fyrir þremur mánuðum. Nú er hún komin í gamla gírinn og byrjuð að sýna sig á sundbolnum. Jenner flaug ásamt kærasta sínum Travis Scott og dóttur þeirra Stormi Webster til Bahamaeyja til þess að fagna 26 ára afmæli Scott. 

Jenner er greinilega komin í ágætisform eftir barnsburðinn og var dugleg að deila myndum af sér á sundfötunum þar sem þau Scott skemmtu sér á snekkju. Á meðan foreldrarnir nutu lífsins var hin þriggja mánaða gamla Stormi hjá barnsfóstru sinni. 

Bahama-ferðin er ekki það eina sem parið hefur gert í tilefni afmælisins eins og fram kemur á vef People en Jenner tók heilan skemmtigarð á leigu í síðustu viku og bauð vinum og fjölskyldu í tilefni afmælis Scott. Mættu þá auðvitað Kardashian-klanið þau Kendall Jenner, Kourtney Kardashian, Kim Kardashian og Kanye West í afmælið. 

birthday behavior

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on May 1, 2018 at 8:02pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson