Tískugoðsögn fallin frá

André Leon Talley sést hér ásamt vinkonu sinni og samstarfskonu …
André Leon Talley sést hér ásamt vinkonu sinni og samstarfskonu Önnu Wintour á frumsýningu The Great Gatsby árið 2013. AFP

Tískugoðsögnin André Leon Talley er látinn 73 ára að aldri. Erlendir fjölmiðlar greina frá láti Talleys auk þess sem lát hans er staðfest á opinberri instagramsíðu hans. Talley lést á þriðjudaginn á spítala í New York en ástæða innlagnarinnar er ekki tilgreind.

Talley var lengi listrænn stjórnandi hjá Vogue og skipaði stórt hlutverk í að breyta tímaritinu á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Hann vann sig upp hjá Vogue og varð fréttastjóri og listrænn stjórnandi hjá tímaritinu. Hann var líka hægri hönd ritstjórans Önnu Wintour.

Tískugoðsögnin var vinur margra af frægustu fatahönnuðum í heimi og má þar nefna Yves Saint Laurent, Karl Lagerfeld, Palomu Picasso, Diane von Furstenberg og Manolo Blahnik. 

André Leon Talley.
André Leon Talley. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson