Laufey Lín gestur hjá Kimmel

Laufey Lín Jónsdóttir flytur tónlistaratriði hjá Kimmel í kvöld.
Laufey Lín Jónsdóttir flytur tónlistaratriði hjá Kimmel í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

Söngkonan Laufey Lín Jónsdóttir verður gestur í spjallþætti Jimmy Kimmel í kvöld en þar verður hún með tónlistaratriði. 

Laufey skrifar á Instagram að það að vera gestur hjá Kimmel sé það klikkaðasta sem hafi komið fyrir hana og að draumur hennar sé að rætast.

Ásamt Laufeyju verða leikararnir Jason Bateman og Ashley Park gestir Kimmel. Bateman er þekktur fyrir hlutverk sín í Ozark og Arrested Developement og Park er þekktust fyrir að fara með hlutverk Mindy Chen í þáttunum Emily in Paris.

Lauf­ey lauk námi við Berk­lee-tón­list­ar­há­skól­ann í Bost­on síðasta vor og þrátt fyrir ungan aldur hefur hún afrekað ýmislegt og gaf til að mynda út lagið „Let me break your heart again“ í sam­starfi við Fíl­harm­ón­íu­sveit Lund­úna í ágúst.

Laufey ræddi við mbl.is í tilefni af útgáfu lagsins og sagðist alltaf hafa ætlað sér að lifa og hrær­ast í heimi tón­list­ar­inn­ar, en fer­ill­inn tók óvænta stefnu­breyt­ingu þegar hún hlaut full­an styrk í Berk­lee-skól­ann í Bost­on. „Mér fannst þetta ansi ólík­leg leið fyr­ir mig að fara, það er í djass- og popp­tónlist,“ seg­ir Lauf­ey. En í Berk­lee lærði hún að eig­in sögn allt milli him­ins og jarðar um heim tón­list­ar­inn­ar, auk söngs.

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)






mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson