Heilbrigðisráðherra Bretlands með kórónuveiruna

Nadine Dorries, heilbrigðisráðherra Bretlands.
Nadine Dorries, heilbrigðisráðherra Bretlands. Ljósmynd/Breska heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra Bretlands, Nadine Dorries, hefur greinst með kórónuveiruna. Frá þessu greinir BBC.

Í yfirlýsingu ráðherrans segir að um leið og smitið hafi fengist staðfest hafi hún gert allar varúðarráðstafanir og sett sjálfa sig í einangrun heima hjá sér.

Hafin er rakning á smitinu að sögn ráðherrans, sem þakkar um leið heilbrigðisstarfsfólki fyrir ráðleggingar sínar og stuðning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert