Segja aðgerðirnar skorta félagslegar áherslur

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Í kynntum aðgerðum stjórnvalda er „ekki að finna stafkrók um viðbrögð til að mæta þeim stóra hópi fólks sem misst hefur atvinnuna á síðustu mánuðum og ástæða er til að óttast að fari stækkandi á næstunni“.

Þetta segir í yfirlýsingu sem Alþýðusamband Íslands hefur sent fjölmiðlum. Bendir sambandið á að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin kynnti í dag skorti félagslegar áherslur.

„Ríkisstjórnin kynnti viðbrögð sín við afleiðingum COVID 19-faraldursins á fyrirtæki og fjármálakerfi  á fréttamannafundi í morgun en lét við það tilefni hjá líða að minnast á þær alvarlegu afleiðingar sem staðan hefur á atvinnu og afkomuöryggi þúsunda launafólks,“ segir í yfirlýsingunni.

„Engar aðgerðir voru kynntar til að efla hin félagslegu stuðningskerfi og treysta öryggi launafólks t.d. með myndarlegri innspýtingu til Vinnumálastofnunar til að efla þjónustu og úrræði til stuðnings atvinnuleitendum.

Þessi viðbrögð sýna okkur fram á mikilvægi þess að samráð sé haft við fulltrúa launafólks til að tryggja jafnvægi hinna efnahagslegu og félagslegu vídda. ASÍ krefst þess að raddir vinnandi fólks og almennings séu ávallt við borðið þegar teknar eru afdrifaríkar ákvarðanir sem varða okkur öll og treystir á að stjórnvöld byggi frekari aðgerðir á slíku samtali.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert