Meira en 100 rúður skemmdust í kjarnorkuveri

Petro Kotin, forstjóri Energoatom.
Petro Kotin, forstjóri Energoatom. AFP/Genya Savilov

Meira en 100 rúður skemmdust í Pívdennúkraínsk, næststærsta kjarnorkuveri Úkraínu, í flugskeytaárás rússneska hersins.

Þetta segir í tilkynningu frá Energoatom, úkraínsku kjarnorkumálastofnuninni.

Þar segir einnig að starfsemi kjarnaofnanna í verinu sé eðlileg og hafi ekki verið raskað í árásinni.

„Öflug sprenging“ er sögð hafa átt sér stað aðeins 300 metr­um frá kjarna­ofn­um kjarn­orku­vers­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert