Allt á kafi í Dúbaí

Þetta er mjög óvenjuleg sjón í Dúbaí. Bílar á kafi …
Þetta er mjög óvenjuleg sjón í Dúbaí. Bílar á kafi á hraðbraut á þessari ljósmynd sem var tekin í dag. AFP

Gríðarleg úrkoma hefur gengið yfir Sameinuðu arabísku furstadæmin (SAF) og nágrannaríki þess undanfarna daga og hefur t.a.m. orðið mikil röskun á starfssemi alþjóðaflugvallarins í borginni Dúbaí, sem er fjölmennasta borg SAF.

Óveðrið olli miklum usla á þriðjudag þar sem vatn flæddi yfir vegi og hluta flugvallarins. 

Alls hafa 20 látist í skyndiflóðum í Óman og einn í SAF. 

AFP

Eitthvað hefur verið um komuflug í dag en að öðru leyti hefur starfsemi á flugvellinum í Dúbaí legið niðri. Þar er alla jafna mjög mikil umferð alla daga, að því er segir í umfjöllun breska útvarpsins.  

Gríðarleg röskun hefur orðið á starfsemi flugvallarinns í Dúbaí þar …
Gríðarleg röskun hefur orðið á starfsemi flugvallarinns í Dúbaí þar sem fjölmargir farþegar reyna nú að yfirgefa landið. Ástandið hefur þó verið með þeim hætti að völlurinn hefur verið vart starfhæfur sökum veðurs. Mörg hundruð flugferðum hefur verið aflýst eða frestað. AFP

Langar raðir

Flugvallaryfirvöld segja að ferðaáætlanir ferðamanna hafi raskast verulega og víða séu langar raðir og bið. 

Yfirvöld í Dúbaí birtu tilkynningu á samfélagsmiðlinum X þar sem hvetja aðeins þá sem eigi staðfestar bókanir að koma á flugvöllinn. 

Gríðarlegur vatnsflaumur hefur gert íbúum lífið leitt.
Gríðarlegur vatnsflaumur hefur gert íbúum lífið leitt. AFP

Ekki séð annað eins

Paul Griffiths, forstjóri flugvallarins, segir að staðan sé erfið. „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi séð annað eins,“ sagði hann. 

Miklar umferðarteppur hafa myndast á vegum við völlinn þar sem fólk reynir að komast í flug. 

Í gær var yfir 300 flugferðum aflýst og mörg hundruð til viðbótar frestuðust. 

Úrkoman sem féll á þriðjudag í SAF er sú mesta í skráðri sögu landsins. Um 259,5 mm féllu þar sem veðurfarið er alla jafna sólríkt og þurrt. 

Ríkisfréttastofa landsins segir úrkomuna hafa verið sögulegan viðburð og ekkert hafi komist í hálfkvisti við hann frá því mælingar hófust árið 1949. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert