Búið að opna Breiðholtsbraut eftir slys

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Breiðholtsbraut í Reykjavík er nú lokuð frá Jaðarseli að Norðlingaholti í báðar áttir vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Uppfært 15:27

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er verið að flytja mann á spítala eftir að ekið var á hann þegar hann var akandi á vespu. Ekki er vitað um alvarleika meiðslanna. Aðgerðum slökkviliðsins á svæðinu er lokið en vegurinn er enn lokaður samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Uppfært 15:45

Vinnu á vettvangi slyssins er nú lokið og búið er að opna fyrir umferð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert