Suðaustanstormur og slagviðri

Veðurstofa Íslands.

Útlit er fyrir ágætisveður á landinu öllu í dag en það breytist hressilega á morgun. Í nótt og á morgun nálgast kröpp og dýpkandi lægð sunnan úr hafi og fer þá að hvessa af suðaustri. Annað kvöld er kominn suðaustanstormur með slagveðursrigningu sunnan- og vestanlands, segir á vef Veðurstofu Íslands. 

Óveðrið í gær fór varla fram hjá nokkrum manni. Trampólín og heitir pottar tókust á loft og björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast. Mælir Veðurstofu Íslands á Ásgarðsfjalli í Kerlingarfjöllum mældi 72 metra hviður þar í fyrrinótt. Gul viðvörun var á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á miðhálendinu í allan gærdag. Á mælum Vegagerðarinnar á Arnarneshæð í Garðabæ mældist vindur þar í gærmorgun 21 metri á sekúndu og fór upp í 40 metra í hviðum. Sama er að segja um Reykjanesbraut þar sem vindurinn mældist 26,6 metrar á sekúndu og hviður fóru í 40 metra. Veðurmælar á Hólmsheiði eru óvirkir og því ekki hægt að gefa upp vindhraða í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.

Muna að festa lausamuni 

„Útlit fyrir ágætisveður á öllu landinu í dag, fremur hægir vindar og smá skúrir eða él á víð og dreif, en suðaustankaldi austan til fram eftir morgni og sums staðar rigning. Í nótt og á morgun nálgast kröpp og dýpkandi lægð sunnan úr hafi og fer þá að hvessa af suðaustri. Annað kvöld er kominn suðaustanstormur með slagveðursrigningu sunnan- og vestanlands. 

Enga lognmollu er að sjá í veðurkortum helgarinnar, enda fleiri öflug veðurkerfi á leiðinni með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. Því er um að gera að fylgjast vel með veðurspám, ekki síst ef leggja á land undir fót og muna að tryggja lausamuni úti í garði og á svölunum, svo þeir takist ekki á loft vindhviðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings í morgunsárið.

Veðurspáin næstu daga

Suðaustan 10-15 m/s A-til framan af morgni og sums staðar rigning, en annars fremur hæg suðlæg átt og smá skúrir eða él. Slydda eða rigning um tíma NA-til síðdegis og fram á kvöld. Kólnar í veðri og hiti 0 til 5 stig síðdegis, en frystir NA-til í kvöld.
Vaxandi suðaustanátt á morgun, 18-25 m/s, og fer að rigna S- og V-til undir kvöld og hlýnar í veðri.

Á fimmtudag:
Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s undir kvöld, hvassast við fjöll. Talsverð rigning S- og V-til, en lengst af þurrt NA-lands. Hlýnandi veður, hiti 2 til 7 stig um kvöldið. 

Á föstudag:
Suðaustan 18-23 m/s og talsverð eða mikil rigning á A-verðu landinu, einkum á SA-landi, en hægari og skúrir eða slydduél V-til. Hiti víða 2 til 7 stig. 

Á laugardag:
Vaxandi sunnan- og síðan suðaustnátt með skúra- eða éljahryðjum, stormur og talsverð rigning eða slydda um kvöldið, en hægara og úrkomulítið N- og A-lands. Hiti 0 til 5 stig. 

Á sunnudag:
Líklega suðaustlæg átt með éljum, en áfram hvasst og rigning fram eftir degi austanlands. 

Á mánudag og þriðjudag:
Sennilega suðaustlæg eða breytileg átt með skúrum eða éljum víða um land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka