Gunnlaugur formaður Hinsegin daga

Gunnlaugur Bragi er nýr formaður Hinsegin daga.
Gunnlaugur Bragi er nýr formaður Hinsegin daga. Ljósmynd/Aðsend

Gunnlaugur Bragi Björnsson var fyrr í kvöld kjörinn nýr formaður Hinsegin daga í Reykjavík á aðalfundi félagsins.

Gunnlaugur Bragi tekur við af Evu Maríu Þórarinsdóttur Lange sem setið hefur í stjórn félagsins frá árinu 2011, þar af sem formaður frá árinu 2012.

Þetta kemur fram í tilkynningu.  

Önnur sem voru kjörin í stjórn Hinsegin daga eru Karen Ósk Magnúsdóttir gjaldkeri, Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson ritari, Helga Haraldsdóttir meðstjórnandi og Ragnar Veigar Guðmundsson meðstjórnandi.

Gunnlaugur Bragi er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á upplýsingamiðlun og starfar á samskiptasviði Arion banka.

Hann hefur setið í stjórn Hinsegin daga frá árinu 2013 og allan þann tíma gegnt embætti gjaldkera félagsins. Áður en Gunnlaugur gekk til liðs við Hinsegin daga var hann m.a. gjaldkeri Samtakanna ‘78 á árunum 2012-2013 og sinnti tímabundið starfi framkvæmdastjóra sama félags árið 2013.

„Framundan eru spennandi tímar í hinsegin samfélaginu. Í ár eru 40 ár liðin frá stofnun Samtakanna ‘78 og á næsta ári fagna Hinsegin dagar í Reykjavík 20 ára afmæli. Ef litið er yfir sögu þessara tveggja félaga sést þrotlaus mannréttindabarátta hinsegin fólks á Íslandi sem sannarlega hefur borið gríðarlegan árangur,“ segir Gunnlaugur Bragi í tilkynningunni.

„Þrátt fyrir mikinn árangur erum við reglulega minnt á að enn er verk að vinna, bæði hér heima og erlendis. Sem dæmi má nefna að fjandsamlegar athugasemdir sem lýsa fordómum í garð hinsegin fólks sjást nær daglega á samfélags- og fréttamiðlum og reglulega fáum við fréttir af hinsegin fólki sem beitt er líkamlegu og andlegu ofbeldi. Ísland hefur dregist aftur úr samanburðarþjóðunum þegar kemur að réttindum og lífsgæðum hinsegin fólks og líklega eiga flestir hinsegin einstaklingar sögur af óviðeigandi framkomu og athugasemdum í sinn garð, hegðun sem hefur viðgengist í okkar garð svo árum skiptir,“ segir hann.

Hinsegin dagar verða haldnir í Reykjavík dagana 7.-12. ágúst 2018 og sem fyrr verða tugir fjölbreyttra viðburða á dagskránni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert