Hyggst kæra úrskurð um farbann

Sindri var úrskurðaður í fjögurra vikna farbann á ný.
Sindri var úrskurðaður í fjögurra vikna farbann á ný. Grunnkort/Map.is

Sindri Þór Stefánsson hefur verið úrskurðaður í eins mánaðar farbann á ný. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is. Lengd farbannsins er í samræmi við kröfur yfirvalda.

Sindri Þór var í byrjun maí úrskurðaður í mánaðar farbann og rann það út klukkan 16.00 í dag. Nú er ljóst að Sindra verður áfram óheimilt að fara úr landi.

Verjandi Sindra, Þorgils Þorgilsson, mótmælti kröfunni um farbannið á þeim grundvelli að skilyrði þess væru ekki uppfyllt. Þorgils staðfestir í samtali við mbl.is að hann muni kæra úrskurðinn strax á mánudag. Hann telur að rannsókn málsins hafi tekið allt of langan tíma.

Ólafur vildi tjá sig sem minnst um málið en gat þó sagt að það væri „verið að vinna í málinu af fullum krafti“ og síðast í dag hefðu farið fram yfirheyrslur. Í ljósi þess muni dragast aðeins að ganga frá ákvörðun varðandi framhaldið en vonir séu bundnar við að hægt verði að taka ákvörðun um miðjan mánuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka