Lögregluaðgerð var í gangi við Þórðarsveig í Grafarholti um hádegi í dag. Fjöldi lögreglubíla og sjúkrabíll var á vettvangi. Slökkviliðið getur ekki gefið upplýsingar um málið aðrar en þær að einn hafi verið fluttur á sjúkrahús með minni háttar meiðsl og að um „erjur“ hafi verið að ræða.
Samkvæmt upplýsingum fólks sem er í nágrenninu voru sex lögreglubílar við fjölbýlishús í Þórðarsveig er mest lét og eitt lögreglumótorhjól.
Þegar þessi frétt er skrifuð um klukkan 12.15 voru enn lögreglubílar við húsið. Ekki hefur náðst í lögreglu til að fá frekari upplýsingar um málið.