„Ég er að sýna samstöðu með Báru. Það eru margir saman komnir hér til að styðja við bakið á henni,“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Bára mætti í réttarsalinn vegna upptöku af þingmönnum á barnum Klaustri í síðasta mánuði.
„Það er búið að vera ótrúlegt að fylgjast með framgöngu þessara þingmanna og þetta er ekki í lagi að mínu mati. Ég segi bara „áfram Bára“.