Sagafilm fyllir Stykkishólm á morgun

Stykkishólmur. Tökur hefjast á morgun.
Stykkishólmur. Tökur hefjast á morgun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á morgun, þriðjudag, mun kvikmyndagerðarfólk á vegum Sagafilm hefja tökur á sjónvarpsþáttaröðinni 20/20 í Stykkishólmi. Fólkið verður þar við tökur fram til 13. mars.

Þetta kemur fram á vef Stykkishólmsbæjar en í Morgunblaðinu í dag segir Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri íbúa vera vana kvikmyndagerðarfólki í bænum og segir komu þess hafa góð áhrif á mannlífið.

„Þetta er skemmtilegt og lífgar upp á tilveruna. Þetta er auðvitað ekki hánnatími í ferðaþjónustunni svo þegar það kemur svona stór hópur, sem bókar upp hótelin, þá kemur ákveðin innspýting inn í ferðaþjónustuna líka.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert