Barn í geðrofi vegna leikfangaslíms

Slím, heimagert eða keypt í búð, getur reynst hættulegt ef …
Slím, heimagert eða keypt í búð, getur reynst hættulegt ef það inniheldur of mikið magn af bórati, sem finnst til dæmis í linskuvökva. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Embætti landlæknis er kunnugt um eitt atvik þar sem barn var lagt inn á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans með geðrofseinkenni sökum slíms, sem ýmist er keypt eða heimagert, og er vinsælt hjá börnum. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.

Neytendastofa varaði nýverið við slími sem inniheldur of mikið af bórinu eða bórati sem getur borist inn í líkamann í gegnum húð. Neytendastofa hefur í tvígang gefið út viðvörum vegna þessa, síðast í gær.

Heimagert slím getur reynst hættulegt ef notaður er linsuvökvi við slímgerðina þar sem í honum er bór. Ef matarsóda er síðan bætt við verða efnahvörf og til verður bórsalt.

Alma D. Möller landlæknir sagði í kvöldfréttum RÚV að slímið hafi eitrandi áhrif þegar það fer inn í húðina.  Þekkt­ar eit­ur­verk­an­ir eru sam­kvæmt vefsíðu Land­lækn­is vegna bórats [...] m.a. húðert­ing með út­brot­um (jafn­vel mik­ill roði og blöðrur), skjálfti, flog, höfuðverk­ur, melt­ing­ar­trufl­an­ir, þung­lyndi og ör­lyndi.

Alma segir að einnig sé hægt að greina einkenni frá miðtaugakerfi eins og „höfuðverk, kvíða, þunglyndi, jafnvel ofskynjanir og einkenni sem hreinlega geta líkst geðrofi“.

Í tilfelli barnsins sem Alma greindi frá fann það fyrir einkennum sem samræmast geðrofi, til dæmis ofskynjunum. Barnið náði bata á þremur til fjórum vikum eftir að það hætti að handfjatla slím.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert