Lokanir gatna og akstur Strætó 17. júní

Lögreglan hvetur vegfarendur til að fara varlega og leggja löglega.
Lögreglan hvetur vegfarendur til að fara varlega og leggja löglega. mbl.is/Styrmir Kári

Mörgum götum verður lokað vegna hátíðarhalda í miðborg Reykjavíkur á morgun, 17. júní, og hvetur lögregla vegfarendur til að fara varlega og leggja löglega, en frekari upplýsingar um götulokanir er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Strætó ekur samkvæmt sunnudagsáætlun á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, en mest mun röskun verða á akstri í kringum miðbæ Reykjavíkur vegna gatnalokana sem vara frá klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Þá verða raskanir í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 10:15 og 15:00.

Raskanir á leiðum strætó 17. júní eru eftirfarandi:

Í Reykjavík verður ekki hægt að aka um Lækjargötu, Fríkirkjuveg, Vonarstræti og hluta Hofsvallagötu milli klukkan 07:00 og 19:00. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 munu aka Snorrabraut til og frá Hlemmi. Eftirtaldar biðstöðvar loka á þessum tíma:

  • Lækjartorg
  • Menntaskólinn í Reykjavík/MR
  • Ráðhúsið
  • Fríkirkjuvegur
  • Hofsvallagata/Hringbraut – í átt að Öldugranda
  • Hofsvallagata/Hávallagata – í átt að Öldugranda
  • Arnarhóll/Lækjartorg
  • Harpa
  • Sæbraut/Frakkastígur
  • Sæbraut/Vitastígur

Í Hafnarfirði munu leiðir 1, 21, 43 og 44 aka hjáleið vegna skrúðgöngu á Hringbraut og Lækjargötu frá klukkan 13:00 til 13:30 og loka eftirtaldar biðstöðvar á meðan:

  • Lækjargata
  • Lækjarskóli 
  • Grænakinn 
  • Flensborg 
  • Suðurbæjarlaug
  • Flensborgartorg 
  • Jófríðarstaðarvegur 
  • Álfaskeið/Mávahraun í átt að Firði 
  • Álfaskeið í átt að Firði 
  • Sólvangur í átt að Firði 

Í Kópavogi aka leiðir 4, 28, 35 og 36 hjáleið til og frá Hamraborg vegna skrúðgöngu á Digranesvegi frá klukkan 13:20 til 14:00 og loka eftirtaldar biðstöðvar á meðan:

  • Kópavogsskóli
  • Menntaskólinn í Kópavogi
  • Digranesvegur/Brattabrekka
  • Hlíðarvegur/Vogatunga 
  • Hlíðarvegur/Grænatunga 
  • Hlíðarvegur/Hrauntunga 

Nánar er hægt að kynna sér raskanir á akstri Strætó 17. júní á heimasíðu Strætó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert