Hafa þurft að loka Safnahúsinu í sumar

Framkvæmdirnar við Hverfisgötu, frá bílastæðahúsinu við Traðarkot á móti Þjóðleikhúsinu og alveg niður að Stjórnarráði, koma að vonum illa við starfsemi í Safnahúsinu, og hefur þurft að loka fyrir heimsóknir einhverja daga í sumar vegna hávaða. Aðsóknin er minni en síðasta sumar.

„Þetta hefur verið mikill hávaði í allt sumar. Þetta verður örugglega frábært þegar þetta verður tilbúið en myndir þú vilja skoða safn í sífelldum hávaða, safn sem á að vera hugguleg upplifun?“ spyr Sigurlaug Hannesdóttir, verkefnastjóri Safnahússins, blaðamann mbl.is þegar hann kíkir við fyrir hádegi.

Rétt eins og framkvæmdirnar hafa skert mjög aðgengi að Safnahúsinu, …
Rétt eins og framkvæmdirnar hafa skert mjög aðgengi að Safnahúsinu, segja rekstraraðilar Gráa kattarins farir sínar ekki sléttar í samskiptum við borgina vegna málsins. mbl.is/Snorri

Fyrir utan standa yfir miklar framkvæmdir og aðgengi að húsinu er mjög takmarkað frá Hverfisgötunni. „Þetta hefur mikil áhrif á það hvernig fólk ratar til okkar. Aðgengismálin eru ekki góð í svona framkvæmdum og gestum hefur fækkað í sumar út af þessu,“ segir Sigurlaug.

Það er hægt að komast hjáleið af Ingólfsstræti og inn á stéttina utan við Safnahúsið en gangandi vegfarendur eru ekki að „villast“ mikið inn á safnið, þar sem enginn á leið af tilviljun um Hverfisgötuna á meðan hún er lokuð.

„Í heildina hefur þetta veruleg áhrif á starfsemina og starfsfólkið,“ segir Sigurlaug. Rekstur safnsins sé rekstur eftir allt, þótt ríkisrekinn sé hann. Sigurlaug segist skilja vel stöðu þeirra verslana sem hafa komið á framfæri kvörtunum vegna framkvæmdanna, sem hafa dregist. Þeim átti að ljúka í ágúst en þeim lýkur að líkindum ekki fyrr en í september.

Ólíkt ferðamönnunum sem sjást í myndbandinu að ofan setti þessi …
Ólíkt ferðamönnunum sem sjást í myndbandinu að ofan setti þessi framkvæmdavesenið ekki fyrir sig og skellti sér á safnið. mbl.is/Snorri

Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafninu og hefur verið frá 2013. Ásamt því að geyma nokkurn safnkost, sem ferðamenn jafnt sem Íslendingar leggja leið sína að til að skoða, eru ýmis fundarrými til leigu í safninu á efri hæðum og einn stór viðburðasalur.

Safnahúsið hýsir starfsemi Þjóðminjasafnsins að hluta en einnig er þar …
Safnahúsið hýsir starfsemi Þjóðminjasafnsins að hluta en einnig er þar fundaraðstaða og fyrirlestrasalur sem eru til útleigu. Reksturinn hefur gengið verr í sumar en síðasta sumar, að því er talið er vegna framkvæmdanna fyrir utan. mbl.is/Snorri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert