Atvinnuleysi mælist 3,5%

Skráð atvinnuleysi í ágúst mældist 3,5% og jókst um 0,1 prósentustig frá júlí. Að jafnaði voru 6.748 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í ágúst og fækkaði um 83 frá júlí.

Alls voru 2.489 fleiri á atvinnuleysisskrá í ágúst 2019 en í ágúst árið áður. Alls voru 3.574 karlar að jafnaði atvinnulausir í ágúst og 3.174 konur og var atvinnuleysi 3,3% meðal karla og 3,7% meðal kvenna og breyttist ekki hjá báðum kynjum frá júlí.

Gera má ráð fyrir að skráð atvinnuleysi verði svipað í september og í ágúst eða á bilinu 3,4% til 3,6%, að því er segir á vef Vinnumálastofnunar.

Í ágúst tók 471 einstaklingur þátt í úrræðum eða starfsþjálfunarverkefnum. Um 96 einstaklingar fóru í ýmiss konar grunnúrræði. Alls fóru 1.077 einstaklingar af skrá í ágústmánuði, þar af fóru 657 í vinnu eða um 61%.

Alls komu inn 119 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í ágúst. Um nokkuð fjölbreytt störf var að ræða en mest þjónustustörf og störf verkafólks í ýmiss konar þjónustu eða 35 störf í hvoru um sig. Þá voru auglýst 15 afgreiðslustörf og 12 störf fyrir iðnaðarmenn.

Í ágúst gaf Vinnumálastofnun út 212 atvinnuleyfi til útlendinga til að starfa hér á landi. Af útgefnum leyfum voru 66 til nýrra útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og 146 leyfi voru framlengd. Samkvæmt skráningu til Vinnumálastofnunar voru 37 erlend þjónustufyrirtæki starfandi í ágúst 2019 með samtals 230 starfsmenn. Þá voru starfsmenn starfsmannaleiga, innlendra og erlendra, samtals 978 í ágúst á vegum 24 starfsmannaleiga.

Alls voru 2.605 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok ágúst eða um 36% allra atvinnulausra. Þessi fjöldi samsvarar um 7,4% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert