Með kannabis í kaffibollanum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöld vegna gruns …
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist vera með kannabisefni í kaffibolla í bílnum. mbl/Arnþór

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist vera með kannabisefni í kaffibolla í bílnum.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að sýnatökur á lögreglustöð hafi gefið til kynna að maðurinn hefði neytt kannabisefna.

Þá hafa allmargir ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 130 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Lögregla var enn fremur með eftirlit með notkun ökuljósa og voru höfð afskipti af tólf ökumönnum sem voru áminntir um að hafa kveikt á ökuljósum bifreiða sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert