Foreldrar sæki börn í skóla

Veðrið er ekkert sérstakt í höfuðborginni.
Veðrið er ekkert sérstakt í höfuðborginni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eru beðnir um að sækja börn sín á meðan gul veðurviðvörun er í gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var foreldrum.

Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu til klukkan 17:00 í dag.

Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar er suðvestanhvassviðri eða -stormur og vindhraði á bilinu 18 til 23 m/s.

Talsverður éljagangur með lélegu skyggni og hálka á vegum og stígum. Fólki er bent á að sýna varkárni.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert