Á 135 km hraða með kannabis í poka

mbl.is

Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 145 km hraða á Grindavíkurvegi þar sem hámarkshraði er 90 km. Annar sem mældist á 135 km hraða á Reykjanesbraut framvísaði kannabisefnum í plastpoka.  Sá þriðji gat ekki sýnt fram á að hann væri með gild ökuréttindi.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert