ÁTVR undirbýr lögbannskröfu og kæru á vefverslanir

ÁTVR undirbýr lögbannsbeiðni og kæru til lögreglu vegna vefverslana með …
ÁTVR undirbýr lögbannsbeiðni og kæru til lögreglu vegna vefverslana með áfengi sem beint er að íslenskum neytendum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

ÁTVR undirbýr nú beiðni um lögbann á hendur vefverslunum sem bjóða neytendum hér á landi áfengi í smásölu. Þetta kemur í kjölfar þess að Arnar Sig­urðsson, vín­kaupmaður hjá San­tew­ines SAS, hóf að selja vín á vefsíðu fyrirtækisins og afhenda það svo jafnvel samdægurs af lager félagsins sem er hér á landi. Fyrirtækið er hins vegar skráð í Frakklandi.

Í tilkynningu frá ÁTVR kemur fram að vefverslanir sem þessar hafi sprottið upp að undanförnu og að smásölu þeirra sé beint til neytenda hér á landi. „Starfseminni er beint gegn lögbundnum einkarétti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis, sem hefur verið ein grunnstoða íslenskrar áfengisstefnu,“ segir í tilkynningunni.

Arnar Sigurðsson áfengissali .
Arnar Sigurðsson áfengissali . mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vísað er til þess að þeir sem reka vefverslanirnar hafi fullyrt að rekstur þeirra væri löglegur. „Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið hjá til þess bærum aðilum. ÁTVR hefur því hafið undirbúning að beiðni um lögbann á hendur vefverslununum og höfðun dómsmáls í framhaldi af því. Samhliða er hafinn undirbúningur lögreglukæru vegna starfseminnar.“

Segir jafnframt í tilkynningunni að einkaréttur ríkisins til smásölu byggist á lýðheilsusjónarmiðum. „Verði starfsemi vefverslana í beinni samkeppni við smásölu ÁTVR látin óáreitt felur það í sér grundvallarbreytingu á áfengisstefnunni og forsendum fyrir rekstri fyrirtækisins.“

Arnar hefur sjálfur kvartað til Neytendastofu vegna notk­un­ar henn­ar á heit­inu Vín­búðin á rekstri sínum. Segir hann eng­a laga­stoð vera fyrir notkuninni og viðskipta­boð á henn­ar veg­um vill­andi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert