Herða reglur um grímuskyldu á Landspítala

Frá gjörgæsludeild Landspítala.
Frá gjörgæsludeild Landspítala. Ljósmynd/Landspítali

Landspítali tilkynnti í dag að reglur um grímuskyldu á spítalanum yrðu hertar þegar í stað vegna útbreidds kórónuveirusmits í samfélaginu og „margra stakra atburða sem tengjast Landspítala beint“.

Í tilkynningu frá spítalanum segir að farsóttanefnd spítalans sjái sér ekki annað fært en að herða grímuskyldu strax.

„Allir starfsmenn á öllum starfsstöðvum skulu bera grímu sem aðeins má taka niður til að matast en þá skal gæta að eins metra reglu. Allir heimsóknargestir og aðrir sem eiga erindi inn á spítalann skulu bera grímu eins og áður.“

Í tilkynningunni kemur fram að inniliggjandi sjúklingar þurfi ekki að bera grímu nema þegar þeir fara af deild í rannsóknir eða meðferðir.

Alls greind­ust 38 inn­an­lands­smit í gær og voru þar af níu í sótt­kví. Sótt­varna­lækn­ir sagði í sam­tali við mbl.is í dag að smit­in hefðu dreift sér en flest­ir sem hafa greinast eru bólu­sett­ir. Þá sagði hann einnig að hinir smituðu væru ein­kenna­litl­ir og meðal­ald­ur þeirra um 30 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert