Lögregla og sjúkralið voru kölluð út um hálfþrjú leytið í dag vegna umferðarslyss í Hafnarfirðinum.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var ekið á barn á hjóli. Barnið var flutt á slysadeild en ekki voru veittar nánari upplýsingar um líðan þess.
Fréttin hefur verið uppfærð.