Kennarar fella nýjan kjarasamning

Grunnskólakennarar felldu nýjan samning.
Grunnskólakennarar felldu nýjan samning. mbl.is/Hari

Grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning sem þeir greiddu atkvæði um síðustu daga. Tæplega þrír af hverjum fjórum félagsmönnum í Félagi grunnskólakennara sem tók þátt í atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga felldi samninginn, en kjörsókn var 69%.

Á vef Kennarasambandsins er greint frá niðurstöðunum.

Já sögðu 876 eða 24,82%

Nei sagði 2.601 eða 73,71%

Auðir 52 eða 1,47%

Á kjörskrá voru 5.092

Atkvæði greiddu 3.529 eða 69,30%

Skrifað var undir kjarasamninginn 30. desember síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla stóð yfir frá hádegi 7. janúar og lauk klukkan 12 í dag, fimmtudaginn 13. janúar 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert