Löng bílaröð sniglast áfram í Kórahverfinu

Ökumenn geta þó notið veðurblíðunnar.
Ökumenn geta þó notið veðurblíðunnar. mbl.is/Þorsteinn

Gríðarlega löng bílaröð hefur myndast í Kórahverfinu í Kópavogi vegna stórtónleika ítalski ten­ór­söngv­arans Andrea Bocelli sem eru í Kórnum í kvöld. 

Ökumaður sagði í samtali við mbl.is rétt fyrir klukkan hálf átta að bílaröðin sniglist áfram en tónleikarnir hefjast klukkan átta. 

Ásamt Bocelli kemur fram 70 manna sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord, kór frá Söngsveitinni Fílharmóníu og sérstakir gestir. 

Á vef tix.is segir að um sé ræða „stærstu sitjandi tónleika fyrr og síðar á Íslandi“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert