Aftur gripið í hurðarhúna í Garðabæ

Áður var greint frá því að maður hefði tekið í …
Áður var greint frá því að maður hefði tekið í hurðarhún með hníf í hendi. Ekki er vitað hvort um er að ræða sama mann. mbl.is

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um mann sem gekk milli fyrirtækja í Garðabæ og greip í hurðarhúna snemma í morgun. Þetta segir í dagbók lögreglu. Þar segir að maðurinn hafi ekki fundist eftir leit.

Um er að ræða annað skipti á stuttum tíma sem maður sést taka í hurðarhúna í Garðabæ en í byrjun mánaðar náðist myndskeið af slíku atviki við heimili í Flata­hverfi.

Sá maður var með hníf í hendi og huldi hann andlit sitt líkt og hann vissi að verið væri að taka hann upp. Ekki er vitað hvort um er að ræða sama mann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert