Fækka opinberum starfsmönnum um 200-300

Í frumvarpi til fjárlaga sem fjármálaráðherra kynnti morgun kemur fram …
Í frumvarpi til fjárlaga sem fjármálaráðherra kynnti morgun kemur fram að gert sðe ráð fyr­ir að launa­kostnaður stofn­anna lækki um 5 millj­arða króna. mbl.is/Árni Sæberg

Stöðugildum opinberra starfsmanna mun fækka um 200-300 á næsta ári, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. 

Í frumvarpi til fjárlaga sem fjármálaráðherra kynnti morgun kemur fram að gert sé ráð fyr­ir því að launa­kostnaður stofn­ana lækki um 5 millj­arða króna milli ára.

Framlínustörfum ekki fækkað

„Við teljum að vegna starfsmannaveltunnar eigi að vera raunhæft að draga úr stöðugildum í opinbera rekstrinum,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is. Hann segir að ekki eigi að fækka fólki í framlínustörfum.

Hvað eru mörg stöðugildi á bak við 5 milljarða?

„Þegar upp er staðið er augljóst að það geta verið 200-300 störf sem ella hefðu verið opinber störf sem verða ýmist aflögð eða ekki til staðar,“ segir Bjarni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert