Sorpu heimilt að semja við Stena

Sorpa í Álfsnesi.
Sorpa í Álfsnesi. mbl.is/Árni Sæberg

Kærunefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu 12. apríl að Sorpu hafi verið heimilt að semja við Stena Recycling AB í kjölfar útboðs á útflutningi og orkuvinnslu úr óendurvinnanlegum úrgangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpu.

Þar segir að með úrskurði nefndarinnar hafi kröfu kæranda um viðurkenningu skaðabótaskyldu verið vísað frá en öllum öðrum kröfum kæranda var hafnað.

„Forsaga málsins er sú að íslenska gámafélagið og Stena Recycling AB voru meðal þeirra aðila sem gerðu tilboð í fyrrnefndu útboði. Sorpa valdi tilboð Stena Recycling sem var lægst en jafnframt stigahæst samkvæmt valforsendum útboðsins. Íslenska gámafélagið kærði þessa ákvörðun SORPU til kærunefndar útboðsmála 29. júní sl.  Í kæru var krafist að ákvörðun Sorpu um val tilboðsins yrði felld úr gildi, að viðurkennt væri að Sorpa væri skylt að gera samning við Íslenska gámafélagið og að Sorpa greiddi kæranda málskostnað,” segir í tilkynningunni.

Fram kemur að þar sem kæra hafi borist á biðtíma hafi samningsgerð sjálfkrafa stöðvast vegna hennar. Sorpa krafðist þess að öllum kröfum Íslenska gámafélagsins yrði hafnað og að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt.

„Í framhaldinu var tilboð Stena Recycling endanlega samþykkt og kærði Íslenska gámafélagið þá ákvörðun til nefndarinnar og krafðist þess að hún léti upp álit sitt á skaðabótaskyldu Sorpu vegna þess. Kærur Íslenska gámafélagsins voru sameinaðar í einu máli,” segir þar einnig.

„Með úrskurði nefndarinnar í sameinuðum málum var kröfu um álit á skaðabótaskyldu vísað frá nefndinni þar sem Íslenska Gámafélaginu hefði verið í lófa lagið að gera slíka kröfu í upphaflegri kæru málsins 29. júní 2023. Kæran væri því utan kærufrests og því vísað frá nefndinni. Kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar um val á tilboði Stena Recycling var hafnað þar sem kominn væri á bindandi samningur og kröfu um viðurkenningu að SORPU væri gert að gera samning við Íslenska gámafélagið var hafnað þar sem hún væri utan valdsviðs kærunefndarinnar. Þá var kröfum um málskostnað hafnað.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert