Landhelgisgæsla Íslands hafði betur gegn breska flughernum í knattspyrnuleik sem fram fór í Reykjaneshöll á föstudagskvöld. Úrslit leiksins réðust í vítaspyrnukeppni eftir 3-3-jafntefli og náðu Íslendingar þar fram hefndum, en síðasti leikur Landhelgisgæslunnar og konunglega breska flughersins fór fram árið 1944, fyrir 75 árum. Þá höfðu Bretar betur.