Björgunarsveitarmaðurinn Halldór Óli Hjálmarsson á Ísafirði segir að þeim aðgerðum sem stýrt hefur verið úr aðgerðastjórn þar undanfarna tvo daga ljúki væntanlega á morgun, en helst á eftir að ljúka við hreinsun á húsinu við Ólafstún á Flateyri sem varð fyrir flóði á þriðjudagskvöld. Verkefnin undanfarna tvo daga hafa tekið mjög á þá sem muna glöggt eftir hörmungunum árið 1995.