Lífsgæði sem munar um

mbl.is/Kristinn Magnússon

Síðasta laugardag var ég á heimleið til Noregs, átti pantað flug rúmlega 12. Eftir viku með miklar áskoranir ákvað ég að kíkja í hina flottu sundlaug sem við höfum í Garðabæ áður en rútan var tekin upp á flugvöll. Var komin í Ásgarð kl 7.50 en þá kom í ljós að laugin opnar ekki fyrr en kl. 8 um helgar. Þannig að það var ein lausn í stöðunni að bíða í 10 mínútur.

Var komin upp í heita pottinn kl. 8.03. Vissi frá bæði eigin reynslu og rannsóknum að það að fara í heit böð er jákvætt til að slaka á. Ég lét 38 stiga heitt vatnið renna yfir axlirnar og horfði á vatnsgufuna stíga upp frá lauginni.

Varð hugsað til Tolla, okkar frábæra listamanns, sem hafði sagt við mig á núvitundarnámskeiði: mundu að anda rólega inn um nefið og út um munninn, þannig að þú heyrir í útönduninni. Ég endurtók þetta nokkur skipti og fann hvernig ég náði að slaka á einn með sjálfum mér. Ég var aleinn í lauginni í 7 mínútur. Þá komu nokkrir sundkappar á réttum aldri og byrjuðu að synda. Ég hugsaði vá, þvílík lífsgæði sem okkar sundlaugar geta veitt okkur. Það er að segja okkur sem stundum sundlaugar.

Mér varð líka hugsað til Snorra Sturlusonar sem skrifaði hið stóra verk Heimskringlu. Okkar mikilvægasta framlag inn í heimsbókmenntirnar. Talið er að Snorri hafi iðulega notað sína laug, Snorralaug í Reykholti, til að endurnýja líkama og sál á umbrotatímum Sturlungaaldar. Ég hvet alla til að prófa að fara í sund snemma morguns og njóta þess að slaka á í 38-39 stiga hita. Ef þið eruð heppin þá náið þið kannski að vera ein í sundlauginni í nokkrar mínútur eins og ég. Hvet alla til að nota sundlaugar bæði til þjálfunar og slökunar.

En aftur að lífsgæðum. Eftir að hafa hugsað að sundlaugar eru klárlega mikil lífsgæði má skoða hvaða aðrir þættir geta talist til okkar mestu lífsgæða hér á okkar fallega landi:

1. Heita vatnið er klárlega einn af lykilþáttum í okkar lífsgæðum bæði hvað varðar upphitun húsa, gufuaflsvirkjana og okkar frábæru sundlaugar um allt land.

2. Náttúran okkar er stórkostleg og er í lykilhlutverki að laða til landsins um 2 milljónir ferðamanna á ári. Gullfoss, Goðafoss og Dettifoss eru eitthvað sem fær menn til að skilja kraftinn sem finnst í náttúrunni (og okkur Íslendingum). Að standa nálægt náttúruundrum eins og Dettifossi eða að sjá Strokk strekkja sig á móti himninum skapar varanlega „snaga“ (netverk af taugafrumum) kunnáttu og tilfinningu um náttúrukrafta.

3. Öryggi íbúa landsins verður líka að teljast til mikilla lífsgæða sem því miður er ekki að finna í flestum löndum heimsins. Hérna á Íslandi geta bæði börn og fullorðnir sinnt sínum daglegu störfum án þess að vera í hættu með líf og limi.

4. Matur sem við höfum aðgang að verður líka að teljast til mikilla lífsgæða. Fjallalambið okkar er heimsþekkt, einnig okkar góði þorskur, lax og bleikja. Ekki má gleyma skyrinu sem ryður sér til rúms í fleiri og fleiri löndum. Íslensk garðyrkja hefur einnig öðlast mikla athygli í gegnum gróðrastöðvar eins og Friðheima þar sem menn komast virkilega í samband við tómataræktun og frábæra tómatasúpu sem er borðuð inni í gróðurhúsinu. Íslenski hesturinn er einnig þáttur sem dregur ferðamenn til landsins.

Verum stolt af þessum þáttum og pössum upp á þá bæði fyrir komandi kynslóðir okkar landsmanna og ferðamanna.

Vinnum að friðun náttúru landsins og hugsum fram á við.

Hermundur Sigmundsson prófessor.
Hermundur Sigmundsson prófessor. Kristinn Magnússon

Her­mund­ur Sig­munds­son er pró­fess­or í lífeðlis­legri sál­fræði við Há­skól­ann í Þránd­heimi og Há­skól­ann í Reykja­vík og skrif­ar pistla um vís­indi og sam­fé­lag. Pist­ill­inn birt­ist fyrst í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins 17. fe­brú­ar 2019.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert