Facebook er komið í gagnið eftir að hafa legið niðri í rúma klukkustund í dag. Sömu sögu er ekki að segja af Instagram og Threads sem einnig eru í eigu Meta. Enn er bilun sem hefur áhrif á þá miðla.
Bilunin virðist hafa verið á alheimsvísu og um 580 þúsund tilkynningar um að Facebook lægi niðri bárust til Downdetector sem fylgist með alþjóðlegum vefsíðum.