3ja ára veiddi fyrsta fiskinn á háhesti

Víkingur Manúel Elíasson með fyrstu bleikjuna sína sem hann veiddi …
Víkingur Manúel Elíasson með fyrstu bleikjuna sína sem hann veiddi í Köldukvísl. 3ja á tók hana á flugu sitjandi á háhest. Var afar sáttur. Ljósmynd/ES

Kaldakvísl á Sprengisandi hefur gefið mikla og stöðuga bleikjuveiði eftir að harður vetur gaf eftir þar efra. Slóðinn upp að neðsta veiðistað, Ósnum er orðinn fær jepplingum og jeppum og fór ritstjórn Sporðakasta til veiða þar í gær.

Með í för var þriggja ára afastrákur með ólæknandi veiðidellu og að sama skapi enga þolinmæði. Hann var settur á háhest og fékk mýkstu fluguveiðistöngina og sveiflaði henni fljótlega eins og herforingi. Eftir örfá köst setti Víkingur svo í væna bleikju og barðist við hana í drjúga stund þar sem skilningur á átökum við alvöru fisk var takmarkaður. Eftir nokkur öskur og hlátur náðist þessi líka fallega þriggja punda bleikja í háfinn. Henni var sleppt með tilheyrandi efasemdum. Skömmu síðar landaði Víkingur annar bleikju sem var áþekk. Veiðidellan helltist yfir hann og það varð að draga hann í burtu öskrandi, „Ég lil veiða annan.“ Skipti engu þó að hann væri orðinn blár af kulda og blautur í gegn.

Hólmfríður Ólafsdóttir og Diljá Anna Júlíusdóttir lönduðu sex bleikjun í …
Hólmfríður Ólafsdóttir og Diljá Anna Júlíusdóttir lönduðu sex bleikjun í sinni fyrstu tilraun með flugustöng. Ljósmynd/ES

Kaldakvísl er fullkominn staður fyrir þá sem vilja koma börnum í fisk og leyfa þeim að upplifa átök við alvöru bleikjur. Og þá er rétt að benda á Ósinn sem geymir ótrúlegt magn af fiski.

Þrjár ungar konur voru með í för og voru að taka sín fyrstu köst með flugu. Þær settu í og lönduðu sjö bleikjum þegar upp var staðið. Þó nokkrar misstust. Þetta voru þær Diljá Anna Júlíusdóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir og Helena Ósk Óskarsdóttir. Þær fengu alla fiskana á litlar púpur í andstreymisveiði. Þær sem gáfu best voru koparlitaðar og brúnar.

Helena Ósk Óskarsdóttir landar sínum fyrsta flugufiski. Falleg bleikja. Í …
Helena Ósk Óskarsdóttir landar sínum fyrsta flugufiski. Falleg bleikja. Í baksýn er Tjaldkvísl. Ljósmynd/ES

Eftir að hafa skyggnt Ósinn er ljóst að hann er pakkaður af fiski og ef eitthvað er, þá er bleikjan stærri en verið hefur.

Nýlega fékk hópur hörku silungsveiðimanna sjötíu bleikjur í Köldukvísl og það á einum degi. Kaldakvísl fellur í Sporðöldulón og er Ósinn þar sem áin fellur út í lónið. Ofar í Köldukvísl má einnig finna urriða og geta þeir verið vænir að það er nokkur áskörun að finna fiskana.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert