Tárfelldi þegar kassinn var opnaður

Hér eru Sturla Birgisson og Falmouth lávarður með 105 sentímetra …
Hér eru Sturla Birgisson og Falmouth lávarður með 105 sentímetra fiskinn sem sá síðarnefndi veiddi í Langhyl 22. júlí 2022. Þessi fiskur heldur áfram að gefa. Ljósmynd/SB

Breski lávarðurinn Lord Falmouth hefur komið til Íslands til að veiða lax í rúma tvo áratugi. Hann veiddi í fyrrasumar stærsta lax sem veiddist á Íslandi sumarið 2022. Sagan af þessum laxi er mögnuð og stöðugt bætist í hana og hún er í raun ekki full skrifuð enn.

Það var að morgni 22. júlí sem stórlaxinn veiddist í Laxá á Ásum. Aðdragandinn var þó nokkur. Grípum niður í frétt Sporðakasta sem birtist daginn eftir. „Sturla Birg­is­son staðar­hald­ari og um­sjón­ar­maður fór með Falmouth lá­v­arð upp í Lang­hyl. Þeir voru að veiða Skrána og und­ir var sett Even­ing dress kvart tommu flottúba og krók­ur núm­er fjór­tán. Lord Falmouth sem var með Stulla, eða Stu eins og Bret­arn­ir kalla hann staldraði við. „Ég sagði við Stu. Síðasta kast hjá mér var svo lé­legt að ég vil skoða taum­inn. Það passaði. það voru tveir vind­hnút­ar á hon­um. Ég sagði við Stu að við þyrft­um nýj­an taum. Það var líka eins gott,“ sagði lá­v­arður­inn í sam­tali við Sporðaköst í gær­kvöldi.“

Þessi saga er lengri. Þann 11. júní var Stulli í sinni hefðbundnu morgunathugun. Sjá hvað væri að koma af laxi. Þetta var fyrir opnun og alla morgna fór hann og kíkti af brúnni. Þennan morgun sá hann lax skammt neðan við brúna á þjóðvegi eitt. Þetta var lax í yfirstærð.

Fiskurinn sem Lord Falmouth veiddi er hér kominn í öndvegi …
Fiskurinn sem Lord Falmouth veiddi er hér kominn í öndvegi í veiðihúsinu í Laxá á Ásum. Það var hinn vel þekkti listamaður Roger Brooks sem skar út laxana og handmálaði. Ljósmynd/SB


Í opn­un Ásanna sem var 17. júní sá hann þenn­an lax, að hann tel­ur, fara upp Mána­foss. Stulli kallaði á eft­ir hon­um, „Sé þig seinna.“ Stulli hafði sagt Sporðaköst­um frá þessu at­viki. Svo fannst þessi fisk­ur ekki fyrr en rúmum mánuði síðar og það í Lang­hyl. Höldum áfram að rifja upp frétt Sporðakasta um stórlaxinn. „Við erum komin þar í sög­unni að það er kom­inn nýr taum­ur und­ir hjá Falmouth. Kastið tekst með ágæt­um og Stulli lýs­ir tök­unni svona. „Hann kom upp og ég sá hann. Hann náði henni ekki í fyrstu at­rennu en sneri sér strax við og kom hálf­ur upp úr og negldi flug­una. Um leið og ég sá sporðinn sagði ég við Lord­inn. „Þetta er hann.“ Ég hef aldrei séð svona ofsa­fengna töku í Lang­hyl og læt­in voru rosa­leg,“ sagði Stulli í sam­tali við Sporðaköst.“

Þetta var viður­eign sem stóð í hálf­tíma. Sjálf­ur sagðist Falmouth hafa verið stressaður. „Ég vissi fljót­lega að þetta var mjög stór fisk­ur. Og þegar frændi minn og vin­ur komu og ætluðu að fylgj­ast með viður­eign­inni öskraði Stu á þá að fara lengra í burtu. Þá fyrst fattaði ég að við voru að slást við ein­hvern risa. Ég losaði aðeins á brems­unni og notaði þumalputt­ann á hjólið. Ég var orðinn mjög stressaður. Stu var svo klár með háfinn og náði að háfa hann þó lax­inn kæm­ist varla í háfinn.“
Þeir fé­lag­ar mældu fisk­inn og hann stóð 105 sentí­metra sem ger­ði hann að stærsta laxi veidd­um á Íslandi sumarið 2022. Stulli seg­ist hafa vandað sig sér­stak­lega mikið við mæl­ing­una eft­ir að hafa lesið frétt á Sporðaköst­um í fyrra­dag um gagn­rýni á hundraðkalla­list­ann. „Ég var að fara að sleppa hon­um en ákvað að mæla hann aft­ur til ör­ygg­is. Þar staðfest­ist á óyggj­andi hátt að hæng­ur­inn var 105 sentí­metr­ar.“ Stulli gerði meira en það. Hann sendi mynd af mæl­ing­unni svo ekki fer á milli mála að fisk­ur­inn stend­ur 105 sentí­metra.
Stærsti lax sumarsins á Íslandi 2022. Fiskurinn er hreint listaverk …
Stærsti lax sumarsins á Íslandi 2022. Fiskurinn er hreint listaverk og Roger Brooks hefur áratugum saman skorið út fiska og þykir einn sá besti í sinni grein. Ljósmynd/SB
Lord Falmouth var í skýjunum og kannski rúmlega það þegar Sporðaköst ræddu við hann í síma um þessa upplifun.
„Ég hef aldrei átt svona stór­kost­lega stund í laxveiði eins og ég upp­lifði seinnipart­inn í dag. Ég hef aldrei veitt svona stór­kost­leg­an fisk áður. Ekk­ert í lík­ingu við þenn­an fisk. Að upp­lifa þetta hér á norður­hluta Íslands var hreint úr sagt ein­stök lífs­reynsla. Ég hef komið til Íslands í tvo ára­tugi að veiða lax og njóta þess­ar­ar mögnuðu nátt­úru og þetta er langstærsti lax sem ég hef veitt. Ég hafði fengið stærst átján punda lax en allt blikn­ar í sam­an­b­urði við þenn­an stór­kost­lega fisk,“ sagði lá­v­arður­inn og átti erfitt með að finna nægi­lega stór og mörg lýsingarorð.
En þessi lax átti eftir að halda áfram að hafa áhrif á líf lávarðarins. Sturla Birgisson sendi mynd af laxinum til Roger Brooks í Herefordshire á Englandi sem sérhæfir sig í að skera út nákvæmar eftirlíkingar af fiskum, úr viði. Með fylgdu nákvæm mál af hængnum stóra. Raunar voru búnir til tveir fiskar, nákvæmlega eins og báðir eftirlíking af 105 sentímetra höfðingjanum úr Langhyl. Annar fiskurinn kom til Íslands og hefur fengið veglegan sess í veiðihúsinu við Laxá í Ásum fyrir ofan arininn. Hinn fór aldrei frá Englandi. Frændi Falmouths lávarðar keypti hann.
Frændi lávarðarins sendi Falmouth í vetur boð um að koma í síðdegis te, eða dæmigert breskt afternoon tea. Hann mætti grunlaus um að eitthvað annað stæði til en sötra te og borða skonsur. Þegar tedrykkjan var hafin sagðist frændinn vera með hlut sem hann vildi sýna lávarðinum. Þeir færðu sig um set og komu að þar sem viðarkassi stóð á borði. Frændinn bað lávarðinn um að opna kassann. Sá síðarnefndi gerði það og við blasti laxinn sem hann hafði veitt sumarið áður á Íslandi. Hann var drjúga stund að meðtaka það sem blasti við honum. Frændinn sagði honum að laxinn væri hans.
Útskurðarmeistarinn fékk mikið af myndum til að vinna eftir. Hér …
Útskurðarmeistarinn fékk mikið af myndum til að vinna eftir. Hér er Sturla sjálfur með fiskinn og í baksýn er hinn magnaði Langhylur í Laxá á Ásum. Ljósmynd/SB
Tár brutust fram og nokkur trítluðu af stað í áttina að laxinum. „Aldrei hefur nokkur gert annað eins fyrir mig,“ stundi lávarðurinn upp.
Í sumar kemur Lord Falmouth til Íslands að veiða en hann hefur haft þann háttinn á að hann kemur annað hvert ár. Hann veit ekki að tvíburabróðir laxins sem prýðir nú heimili hans er staðsettur í veiðihúsinu við Laxá á Ásum.
„Það verður gaman að sjá svipinn á kallinum þegar hann sér hann upp á vegg hjá okkur næsta sumar,“ segir Stulli og brosir með sjálfum sér. 
Fyrir áhugasama um verk Rogers Brooks má benda á heimasíðuna hans rogerbrookes.com
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert