Ný bragðtegund komin í verslanir

Ljósmynd/MS

KEA skyr býður nú upp á þriðju bragðtegundina af tveggja laga skyri þar sem hreint og silkimjúkt skyrið liggur ofan á bragðgóðum ávöxtum í botni dósarinnar.

Nýja skyrið er með skógarberjum í botni og óhætt að segja að það sé fullkomið fyrir þá sem vilja hræra aðeins upp í hlutunum og prófa eitthvað nýtt.

Viðbættum sykri er sem fyrr haldið í lágmarki en í hverjum 100 g eru einungis 4 g viðbættur sykur. Þá er nýja skyrið jafnframt laktósalaust eins og annað KEA skyr.

Miðað við vinsældir tveggja laga KEA skyrs með mangó í botni og jarðarberjum í botni gerum við ráð fyrir að landsmenn muni taka þessari viðbót fagnandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert