Þetta er desert sumarsins á grillið

Grillaður ananas er sjúklega góður!
Grillaður ananas er sjúklega góður! mbl.is/Adobe stock

Þú ert að missa af miklu ef þú notar grillið eingöngu fyrir steikur. Því þessi grillaði ananas tekur bragðlaukana inn í annan heim! Hér blandast saman stemningin af grillinu við cayenne pipar og viskí sem gerir þennan rétt einstaklega ávanabindandi – hvort sem um forrétt eða desert með ískúlu sé að ræða.

Þetta er desert sumarsins á grillið

  • 1 ananas, skorinn í stóra bita
  • 1½ bolli fireball viskí
  • ¼ bolli kanilsykur
  • ¼ tsk cayenne pipar (má sleppa)

Aðferð:

  1. Skerið ananasinn í langa bita og setjið í stóra skál. Hellið fireball viskí yfir og setjið inn í ísskáp í 1 klukkustund, hrærið einu sinni í eftir hálftíma.
  2. Hellið viskíinu af, en geymið það þar til seinna í kokteila kvöldsins.
  3. Stráið kanilsykri og cayenne pipar yfir ananasinn og veltið upp úr þar til ananasinn er allur þakinn.
  4. Hitið grillið á meðalhita og grillið ananasinn í 8-10 mínútur. Snúið annað slagið.
  5. Berið fram sem forrétt eða eftirrétt með ískúlu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert